|
|
|
|
|
Upplýst samþykki |
|
|
Alþjóðleg
skoðanakönnun |
|
|
|
|
|
Hnattræn sjónarhorn á frið, stríð og
ofbeldi af hálfu hins opinbera |
Þessi könnun var þróuð af hópi nemanda af ýmsum þjóðernum til að fræðast um skoðanir fólks um allan heim um réttindi einstaklinga innan fjölskyldna og samfélaga. Þér ber engin skylda til að taka þátt í könnuninni. Ef þú samþykkir að taka þátt í henni verðurðu beðin/n um að gefa til að kynna að hve miklu leyti þú ert sammála yfirlýsingum varðandi réttindi einstaklinga og ríkisstjórna. Einnig verðurðu beðin/n um að útskýra afstöðu þína skriflega. Þú verður einnig beðin/n um að bregðast við lýsingum af atburðum og lýsa því hvernig þér myndi líða og hvað þú myndir vilja gera ef þú upplifðir ofbeldi eins og t.d. sprengingar. Að lokum verðurðu beðin/n að gefa þína eigin skilgreiningu á nokkrum orðum, t.d. ”ofbeldi”. Þú getur valið að sleppa einhverjum spurningum og mátt hætta þegar þú vilt. Þú getur beint öllum spurningum varðandi rannsóknina til okkar í gegnum tölvupóst, bréf eða síma. Öll heimilisföng eru gefin hér að neðan.
Við biðjum ekki um nafn í könnuninni og nafn
þitt kemur hvergi fram á henni. Þegar þú skilar könnuninni í gegnum
netið fer hún í gegnum forrit sem heitir Pony
Express og það fjarlægir netfangið þitt til þess að tryggja algjört
nafnleysi. Til að vinna úr niðurstöðum verður hverri innsendri niðurstöðu
verður gefið númer sem ekki verður hægt að tengja við
einstakling. Þó er almenn vitneskja að erfitt er að tryggja algjöran trúnað
upplýsinga sem sendar eru í gegnum vefinn. Ef þér
þykir óþægilegt að senda upplýsingar á þennan hátt geturðu beðið okkur að senda
þér umsóknina á pappír og sent hana til baka á okkar
kostnað. Niðurstöður sem berast í gegnum vefinn eru
vistaðar í tölvu á læstri skrifstofu í
Þegar fjallað verður um niðurstöður í rannsóknarritum eða á ráðstefnum verða einungis hópniðurstöður eða nafnlausar tilvitnanir birtar. Ekki verður hægt að bera kennsl á einstaklinga. Þegar verkefninu lýkur verður samantekt á niðurstöðum birt á vefsíðu verkefnisins: http://people.bu.edu/jdgmnts.
Það er engin fyrirsjáanleg áhætta sem fylgir því að taka þátt í rannsókninni þó þér kunni að finnast óþægilegt að veita upplýsingar um skoðanir þínar á því ofbeldi sem tíðkast í heiminum í dag. Mundu að ef þér finnst óþægilegt að svara spurningunum, þá er þér frjálst að hætta að svara hvenær sem er og þú þarft ekki að senda inn svörin. Þátttaka þín veitir okkur aukinn silning á fjölmenningarlegri sýn á beitingu ofbeldis í samfélagi og styður þannig við rannsóknir, þróun opinberrar stefnu og alþjóðlegs skilnings.
Ef þú hefur einhverjar spurningar geturðu sent bréf eða tölvupóst til
forsvarsmanns ranns+óknarinnar, Kathleen Malley-Morrison, Department of
Psychology,
Þessi könnun hefur hlotið samþykki Institutional Review
Board (IRB) við
Það tekur á bilinu 15 til 30 mínútur að klára þessa könnun. Það fer allt eftir því hversu ítarlega þáttakendur vilja gera grein fyrir máli sínu. Við mælum með því að þáttakendur geri eins ítarlega grein fyrir skoðunum sínum og auðið er. Ef þú vilt prenta út eintak af þessu upplýsta samþykki er best að gera það núna.
Ef þú vilt prenta út eintak af
þessu upplýsta samþykki er best að