 |
Um þessar mundir velta margar þjóðir vöngum yfir þjóðlegri arfleifð sinni. Hugmyndir og kenningar fyrri alda eru til endurskoðunar og margar spurningar á lofti. Spurningar um endurnýjun, framtíð og eðli þjóðbúninga snúast fyrst og fremst um merkingu og tilgang þeirra í nútímaþjóðfélagi, hvaða tilgangi þeir þjóni, og hvaða stefnu skuli taka í gerð, notkun og rannsóknum á þeim. Umræða um framtíð þjóðlegra tákna og stefna í varðveislu menningarhefðar krefst þess að raddir þeirra heyrist sem bera, vinna við, láta sig varða og vernda þá hluti sem teljast til þjóðlegra verðmæta. Þetta verkefni hefur þann tilgang að leggja fram til umræðunnar -með viðtölum, þjóðfræðilegurm vettvangsrannsóknum og sagnfræðilegum samanburði- afstöðu og sjónarmið þeirra sem láta sig varða íslenska kvenbúninga á öndverðri 21. öld. |
 |