Vegna rannsóknar sem tengist doktorsritgerð minni, mun ég vera á Íslandi af og til fram á haust 2010, til að eiga viðtöl við fólk sem tengist íslenskum kvenbúningum.
Ef þú klæðist, saumar, rannsakar eða ert innblásin til skapandi verka af þjóðbúningum íslenskra kvenna, þá þætti mér mikill fengur í að fá spjalla við þig smástund þegar ég er á landinu. Ég vil vita hvaða reynslu og skoðanir þú hefur, svo að lifandi mynd af búningunum í dag birtist sem skýrast.
Sendu mér skeyti, hringdu eða hafðu samband!
Upplýsingar um hvar mig er að finna eru hér fyrir neðan
~Karl Aspelund |