detail

Karl hefur nýlokið doktorsvörn í mannfræði við Boston University í Bandaríkjunum og hefur síðastliðin þrjú ár unnið að rannsókn um eðli og þróun þjóðlegs klæðnaðar íslenskra kvenna. Hann hefur kennt fatahönnun og skyldar greinar við University of Rhode Island síðan 1996 en tók nýlega við fullri kennslustöðu í hönnun og búningasögu. Áður kenndi hann við Fataiðndeild Iðnskólans í Reykjavík og stjórnaði Iðnhönnunardeildinni þar jafnhliða því að hanna leikmyndir og búninga fyrir leikhús og kvikmyndir á Íslandi í rúman áratug.

Karl er höfundur tveggja bóka: The Design Process, sem er notuð til kennslu í á fimmta tug háskóla í Bandaríkjunum og Fashioning Society, sögulegt yfirlit um stöðu hátískuhönnunar í nútímaþjóðfélagi vesturlanda.

Æviatriðaskrá (PDF) má finna hér.

hlekkur á heimasíðu
um karl
 
 
 
 
Disclaimer